Kærkominn griðastaður
Vertu hjartanlega velkomin/n í Kyrrðarjóga.
Hér inni á þessari síðu finnurðu ýmis konar fróðleik um heilsufarslegan ávinning þess að stunda hugleiðslu og djúpslökun. Hornsteinar Kyrrðarjóga eru einmitt hugleiðsla, djúpslökun, öndunaræfingar og tónheilun.
Streita og hraði er einkennandi fyrir okkar lífstíl í dag og því getur Kyrrðarjóga verið kærkominn griðarstaður í dagsins önn. Allir geta stundað hugleiðslu og mikilvægt er að hver og einn finni sína leið og gefi sér andrými.
Við viljum því gjarnan hjálpa þér að taka fyrsta skrefið inn í þennan töfraheim með því að bjóða þér að hlusta á leiddar hugleiðslur sem eru aðgengilegar hér.
Kærar kveðjur,
Laufey og Rebekka,
hjúkrunarfræðingar og jógakennarar
Hugleiðslur
Við bjóðum þér hér upp á þrjár mismunandi hugleiðslur svo að þú getir upplifað Kyrrðarjóga hvar og hvenær sem er. Veldu stað þar sem þú getur verið í næði, komdu þér fyrir í þægilegri sitjandi eða liggjandi stöðu og njóttu þess að hlusta á okkur leiða þig inn í kyrrðina.